Kajakaferðir

Kajakaferðir:

Tilvalin skemmtun fyrir alla fjölskylduna, óvissuferðina, steggja eða gæsaferðina, skólaferðalagið og margt fleira. Við notum eingöngu Sit On Top kajaka sem eru þeir öruggustu sem völ er á.

SkólasvamlSkólahópar. ½ klst. (Svaml) Aðstoðarmaður í landi, róið frjálst um takmarkað svæði, Löngudæl. Tilvalið fyrir skólahópa. Verð 2.200 kr. "Munið eftir regnfötum og aukafötum".

Fjölskylduferð

Róbinson Krúsó. Ca 1 - 3 klst. án leiðsagnar. Sérlega skemmtilegur möguleiki fyrir fjölskyldur og einstaklinga, þar sem fólk getur kannað á eigin spýtur völundarhús fenjanna. Kort af svæðinu er til sölu í afgreiðslu. Tekið skal fram að svæðið er algjörlega hættulaust. Verð 4.450 kr. börn 6-14 ára 1.200 kr. frítt fyrir yngri en 6 ára.


ChallengeChallenge. 1 klst. skipulögð ferð með leiðsögn. Tilvalið fyrir 5 til 50 manna hópa. Róið eftir Löngudæl og inn í þröngar rásir fenjasvæðisins. Svæði sem býður upp á skemmtilega stemningu og getur reynt á samhæfni hópsins. Verð 4.350 kr.

Power ChallengePower Challenge. 2 klst. skipulögð ferð með leiðsögn. Tilvalið fyrir 5 til 50 manna hópa. Róið eftir Löngudæl, inn í þröngar rásir fenjasvæðisins og allt að þar sem Hraunsáin rennur til sjávar. Svæði sem býður upp á skemmtilega stemningu og getur reynt á samhæfni hópsins. Verð 5.600 kr.

Selur í SjóferðAdventure. 2 klst. sjóferð. Nú er umhverfið allt annar heimur. Skerjagarðurinn með fallegum lónum er heimkynni sela og fugla og lífríkið allt ótrúlega fjölbreytt. Lögð er áhersla á að fólk haldi sig nærri landi með leiðsögumanni. Stórkostleg upplifun! 14 ára aldurstakmark. Verð 7.850 kr.

Sundlaug Stokkseyrar Innifalið: Regnsamfestingur, stígvél og vesti. Í öllum ferðum er aðgangur að sundlaug og heitum pottum á opnunartíma sundlaugar. og einnig fyrir hópa utan opnunartíma.

Verð á opnun Sundlaugar utan opnunartíma fyrir smærri hópa.

hópar 1-5 manns 8.000 kr.

hópar 6-10 manns 5.000 kr

stærri hópar frítt

Þið hafið með: Aukaföt, handklæði og sundföt. Mæting við Sundlaugina á Stokkseyri.

Ath. Fólk er vinsamlegast beðið að neyta ekki áfengis fyrir ferðir!! Þeim einstaklingi sem sjáanlega er undir áhrifum áfengis verður neitað um að fara á kajak.

Pantaðu ferð í síma 896-5716 eða Panta í gegnum email: kajak@kajak.is