Sundlaug Stokkseyrar Sundlaug Stokkseyrar er vinaleg sveitalaug í hjarta Stokkseyrar. Laugin samanstendur af 18 metra útilaug með rennibraut, vaðlaug og tveim heitum pottum. Rúmgóðir karla- og kvennabúningsklefar eru í sundlaugarbyggingunni. Tækjabúnaður sundlaugarinnar var endurnýjaður árið 2010 auk þess sem gert […]
Sundlaug Stokkseyrar
Sundlaug Stokkseyrar er vinaleg sveitalaug í hjarta Stokkseyrar. Laugin samanstendur af 18 metra útilaug með rennibraut, vaðlaug og tveim heitum pottum. Rúmgóðir karla- og kvennabúningsklefar eru í sundlaugarbyggingunni. Tækjabúnaður sundlaugarinnar var endurnýjaður árið 2010 auk þess sem gert var salerni fyrir fatlaða.
Frá sundlauginni er stutt í veitingastaði, söfn, listagallerý, og fjöruna en Stokkseyri stendur alveg við suðurströndina.
Sundlaug Stokkseyrar er kærkominn áfangastaður í Árborg sem engin sér eftir að hafa heimsótt enda ekki á hverjum stað sem sundlaugargestir geta átt von á því að fá heitt kaffi eða djús í pottinn.
Deila þessari ferð